sudurnes.net
Stærsta fjöldahjálparmiðstöðin síðan 1973 - Local Sudurnes
Fjöldahjálparmiðstöðin sem Rauði krossinn setti upp í íþróttahúsinu við Sunnubraut þann á sunnudag er sú stærsta sem sett hefur verið upp síðan árið 1973. Verkefnið, sem unnið var í samstarfi við björgunarsveitir á Suðurnesjum þótti takast einstaklega vel til, en vel á sjötta hundrað manns nýttu sér þá aðstoð sem boðið var upp á og um 150 gistu í íþróttahúsinu. Verkefnið er þó langt frá því að vera það stærsta sem Rauði krossinn á Íslandi hefur ráðist í en það stærsta á þessu sviði var sett upp í þegar gaus í Vestmannaeyjum árið 1973, en þá nýttu um 6000 manns sér fjöldahjálparmiðstöðvar sem settar voru upp í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. Undanfarnar vikur hafa vel á annað þúsund manns nýtt sér fjöldahjálparmiðstöðvar sem Rauði krossinn hefur sett upp víða um land, í flestum tilfellum vegna veðurs. Brynhildur Bolladóttir, upplýsingafulltrúi Rauða krossins, segir í samtali við fréttastofu RÚV að þetta sé áður óþekkt álag en tvö hundruð sjálfboðaliðar og starfsfólk Rauða krossins hafi verið fólki til aðstoðar. Meira frá SuðurnesjumCourtyard hlýtur eftirsótt verðlaun annað árið í röðViðvörunarskilti sett upp við ReykjanesbrautGjaldþrot blasir við United Silicon – Viðræður við mögulega kaupendur í uppnámiSjálfstæðisfólk kennir stjórnmálamönnum – Áslaug Arna leiðbeinir um notkun samfélagsmiðlaLögreglan á [...]