sudurnes.net
Stækka bráðabirgðaskóla í Innri-Njarðvík - Local Sudurnes
Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum í gær að hefja framkvæmdir við stækkun tímabundins húsnæðis Stapaskóla við Dalsbraut í Innri Njarðvík, en bygging nýs grunnskóla á lóðinni verður boðin út á næsta ári. Til stendur að bæta um 105 fermetrum við núverandi bráðabirgðahúsnæði þannig að unnt verði að bæta við einni bekkjardeild fyrir næsta skólaár og taka þannig við nemendum í 1. – 4. bekk. Kennsla í skólanum við Dalsbraut er unnin í samstarfi við Akurskóla og eru nemendur 1. -3. bekkjar úr Dalshverfi við nám í skólanum. Meira frá SuðurnesjumStarfsemi Myllubakkaskóla flutt á fjóra staðiJón Arnór skiptir yfir í NjarðvíkStórt tap hjá Grindavík í úrslitaleiknum – Fengu á sig fleiri mörk en í riðlakeppninniÞróttur leikur um sæti í 3. deild og Grindavíkurstúlkur komust áframSigurbergur áfram hjá Keflavík – Stefnan sett á Pepsí-deildarsætiLeggja til að boðið verði upp á ókeypis tíðarvörur í grunnskólumMargrét efst hjá SjálfstæðisflokkiKeflavík heimsækir Íslandsmeistarana í bikarnumStærsti árgangur sem hefur grunnskólanám í sögu bæjarins – Vel gengur að ráða kennaraRekstur Fjölsmiðjunnar gekk vel á síðasta ári – Kompan stærsti verkþátturinn