sudurnes.net
Staðan á kerfinu góð en rafbílahleðsla aðal áskorunin - Local Sudurnes
Tómas Logi Hallgrímsson, fulltrúi svæðisstjórnar björgunarsveita í aðgerðarstjórn almannavarna á Suðurnesjum, segir, í samtali við Vísi.is, að vandamálið sé ekki rafmagnið á leið inn í bæinn heldur dreifikerfið innan bæjarins. Það sé mikilvægt að íbúar fylgi tilmælum en að staðan sé annars góð. Samkvæmt Tómasi er rafbílahleðsla helsta áskorunin. Hann biðlar til fólks að nota hraðhleðslustöðvar. Brimborg er með eina slíka og hefur tekið ákvörðun um að lækka verðið. Það sé til skoðunar hjá fleiri aðilum á svæðinu. „Við erum í sambandi við þessa aðila og þeir virðast ætla að taka vel í það,“ segir Tómas. „Staðan á kerfunum er þokkalega góð eins og er. Fjöldahjálparstöð er ekki á dagskrá eins og er.“ Sagði Tómas við Vísi. Meira frá SuðurnesjumFóru eftir leiðbeiningum GPS-tækis og enduðu pikkfastir ofan á ruslatunnuLogi verður áfram hjá NjarðvíkingumMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnLogi fyrirmynd KR-ings – “Ef körfuboltamaður leikur handarbrotinn þá get ég það“Ók inn í hlið bifreiðarBjóða upp á leigu matjurtagarðaMisjöfn viðbrögð við úrræði Heimavalla – Íbúar ósáttir en formaður VR segir úrræðið fagnaðarefniVísir hefur vinnslu í HelguvíkHandtekinn um borð í flugvél eftir þjófnað úr fríhafnarverslunLögregla mælir með GPS úrum – “Gerir þér kleift að sjá [...]