sudurnes.net
Spinning til styrktar Fjölskylduhjálp - Local Sudurnes
Sporthúsið og starfsmenn Reykjanesbæjar taka höndum saman næstkomandi sunnudag, þann 27. nóvember frá klukkan 10 til 13 og efna til spinning í þágu Fjölskylduhjálpar. Spinningkennarar Sporthússins leiða tímann og er frjálst að spinna svo lengi sem hver vill, eða getur. Á sama tíma verður Sporthúsið opið öllum þeim sem vilja kynna sér starfsemina eða leggja sitt af mörkum til söfnunarinnar. Ekki þarf að hafa meðlimakort. Tekið verður við frjálsum framlögum á staðnum, ásamt því að hægt verður að leggja inn á reikning í nafni Fjölskylduhjálpar kt 680169-5789 Reiknr 0121-15-350005 Skýring: aðv.spinn. Nöfn allra þátttakenda fara í pott og eiga nokkrir möguleika á að vinna sér inn líkamsræktarkort í Sporthúsið. Hægt er að fá nánari upplýsingar með því að smella hér. Meira frá SuðurnesjumHumarréttur sem leikur við bragðlaukana – Geggjuð uppskrift!Frumhönnun nýs sundlaugarsvæðis kynnt – Sjáðu myndirnar!Afhentu styrki og hefja sölu á happdrættismiðumVogar og Grindavík óska eftir ábendingum um fallega garða25 erlendir gestir hreinsa strandlengjuna við Grindavík – Öllum velkomið að aðstoðaMikil fjölgun gesta í Sundlaug Grindavíkur – Lengja opnunartíma í veturBjóða bæjarbúum að stíga sín fyrstu menningarlegu skrefLeita að rekstraraðila fyrir AðventusvelliðBeruð kynfæri og offita er á meðal efnis í föstudagspistli Árna ÁrnaÁrleg vorhreinsun hefst í dag