Spá stormi víða um land
Veðurstofan spáir vaxandi suðaustanátt í fyrramálið, fyrst suðvestan til, víða 20-28 m/s síðdegis. Snjókoma eða slydda og síðar rigning og talsverð eða mikil rigning suðaustan til. Hlýnar í veðri. Snýst í minnkandi sunnan- og suðvestanátt og minnkandi úrkoma annað kvöld, fyrst suðvestan til. Hiti 2 til 7 stig.
Veðurfræðingur á vakt segir meðal annars í hugleiðingum sínum: „Í fyrramálið hvessir mjög af suðaustri og hlýnar hratt, en engu að síður verður úrkoman snjókoma eða slydda framan af degi en síðar rigning. Suðaustanstormur eða rok víða um land seinnipartinn og ekkert ferðaveður.”