Spá allt að tólf stiga frosti á Suðurnesjum
Það verður frekar kalt á landinu næstu daga ef marka má spákortin á vef Veðurstofu Íslands. Þannig er spáð allt að tólf stiga frosti á Suðurnesjum að snemma morguns á laugardag. Spáin gerir þó ráð fyrir að það hlýni hratt og að hiti verði við frostmark á sunnudag.
Í dag er einnig útlit fyrir að það verði ansi kalt, átta stiga frost, en heiðskírt á hádegi. Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings að norðanáttin verði ríkjandi fram að helgi þar sem það verði kalt í veðri en ekkert sérstaklega hvasst á sunnanverðu landinu.
Spáin fyrir landið næstu daga:
Norðlæg átt, 10-18 m/s á Vestfjörðum og SA-til, annars hægari. Víða él, en léttskýjað á S- og SV-landi. Frost 1 til 12 stig, kaldast í innsveitum. Norðan 8-13 á morgun og heldur hvassara SA-lands. Él um landið norðanvert, en léttskýjað syðra. Áfram kalt í veðri.
Á miðvikudag:
Norðan og norðaustan 5-13 m/s. Él um N-vert landið, en léttskýjað sunnan heiða. Frost 2 til 15 stig, kaldast í innsveitum.
Á fimmtudag:
Norðan 8-13 og éljagangur, en þurrt og bjart veður S-til á landinu. Kalt áfram.
Á föstudag:
Norðanátt og él N-lands, en víða léttskýjað á S- og V-landi. Talsvert frost.
Á laugardag:
Breytileg átt og bjart með köflum, en sums staðar él við ströndina. Kalt í veðri.
Á sunnudag:
Austlæg eða breytileg átt og snjókoma með köflum, en stöku él N-lands. Minnkandi frost.
Á mánudag:
Útlit fyrir suðaustanátt með slyddu eða snjókomu S-til á landinu.