sudurnes.net
Sömu verktakar fá tækifæri til að bjóða aftur í byggingu Stapaskóla - Local Sudurnes
Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum í dag að farið verði í samkeppnisútboð milli þeirra þriggja verktaka sem buðu upphaflega í byggingu Stapaskóla, en bæjarráð hafnað öllum þremur tilboðum sem bárust í verkhönnun og byggingu skólans þann 2. mars síðastliðinn. Byggingaverktakarnir ÞG Verk, Munck á Íslandi og MT Höjgard Ísland sendu upphaflega inn tilboð í verkið sem hljóðuðu upp á frá tæplega 3,8 milljörðum króna til tæplega 4,8 milljarða króna, en kostnaðaráælun sveitarfélagins hljóðar upp á tæplega 3,5 milljarða króna. Samkvæmt upplýsingum frá Umhverfis- og skipulagssviði Reykjanesbæjar kemur þessi niðurstaða til með að tefja framkvæmdir við byggingu skólans, en ekki liggur enn fyrir hversu miklar tafirnar verða. Meira frá SuðurnesjumHafna öllum tilboðum í byggingu StapaskólaGuðmundur Auðun keppir um milljónir króna á Stórbokka 2016Nettó eina verslunin sem lækkar verð á milli kannanaLögregla herðir eftirlit vegna breytinga á sóttvarnaráðstöfunumTvöfalt meiri líkur á að sjá norðurljós á þessum árstíma – Sjáðu hvers vegna!Mann­leg mis­tök or­sök strands við Helgu­víkEkið á 10 ára barn á rafmagnshlaupahjóli – Lögregla með mikilvæg skilaboð!Ekki aukagreiðslur til kennara – “Forgangsröðum sömu upphæð í að bæta starfsumhverfið”Heimilt verður að rífa nokkur hús við Hafnargötu samkvæmt nýju deiliskipulagiÍbúafundur í Hljómahöll um aðalskipulag Reykjanesbæjar