Sögðu upp tveimur reynsluboltum – Leita nú að leiðtoga
Isavia leitar að leiðtoga til að taka við nýrri stöðu framkvæmdastjóra stafrænnar þróunar og upplýsingatækni. Fyrirtækið sagði á dögunum upp tveimur reyndum framkvæmdastjórum vegna skipulagsbreytinga.
Framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni þarf að búa yfir reynslu í stjórnun og hafa góða þekkingu á rekstri og viðskiptum.
Þá kemur viðkomandi til með að leiða þróun stafrænna lausna til að bæta þjónustu við viðskiptavini og auka skilvirkni í rekstri félagsins með hliðsjón af stefnu og markmiðum Isavia. Framkvæmdastjóri vinnur náið með öðrum sviðum Isavia við að greina stafræn tækifæri. Framkvæmdastjóri ber einnig ábyrgð á þróun og rekstri núverandi upplýsingakerfa Isavia.
Svið stafrænnar þróunar og upplýsingatækni er breytingarafl í stafrænni vegferð og upplýsingatæknimálum Isavia. Framkvæmdastjóri heyrir beint undir forstjóra, situr í framkvæmdastjórn félagsins og tekur þátt í stefnumótun þess og innleiðingu stefnu.
Um er að ræða einstakt tækifæri til að leiða umbyltingu í stafrænni þróun og upplýsingatæknimálum Isavia til framtíðar.
Helstu verkefni
• Leiða stafræna þróun og umbyltingu Isavia
• Þróa nýjar stafrænar lausnir og þjónustur
• Taka þátt í stefnumótun og markmiðasetningu Isavia
• Bera ábyrgð á rekstri tölvukerfa og stafrænna lausna
Hæfniskröfur
• Afburða leiðtogahæfni og reynsla af stjórnun og rekstri nauðsynleg
• Mikil samskiptahæfni og metnaður
• Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og nýsköpun
• Víðtæk reynsla og þekking á viðskiptum og stafrænni vöruþróun