sudurnes.net
Söfnun Keflvíkinga gekk vel - Sleppa við nektarhlaup - Local Sudurnes
Söfnun Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur á Karólínafund gekk vel, en á þriðju milljón króna söfnuðust í gegnum vefsíðuna. Ýmislegt var í boði fyrir þá sem lögðu verkefninu lið, til að mynda bolir, plaggöt og ársmiðar. Þá var mögulegt að kaupa matarboð fyrir allt að 10 manns á eigin heimili, en innifalið í því er meðal annars veislustjórn á heimsmælikvarða í umsjá “sérfræðinganna” Sævars Sævars og Jonna en auk þeirra verður ein keflvísk körfuboltagoðsögn hið minnsta. Kokkur kvöldsins verður engin annar enn Örn “soho” Garðarsson. Þessi pakki seldist að sjálfsögðu snemma í ferlinu. Keflvíkingar reyndu að bæta í söfnunina undir lokin með því að lofa nektarhlaupi nokkurra stjórnarmanna gegn sölu á nokkur hundruð sýndarmiðum, en takmarkið þar náðist ekki. Meira frá SuðurnesjumSoho opnar veitingahús á LjósanóttUm 15.000 hafa horft á þrjú myndbönd Stopp-hópsinsTæplega 100 Ísfirðingar á leið á Nettómót – Um 20 lið afboðað komu3.000.000 manns hafa horft á þetta myndband á 10 dögum – Þú skalt gera það líka!Grannaslagur í Dominos-deildinni á fimmtudagKeppir við heimsmeistarannEkkert svindl og Soho Grillvinafélagið bar sigur úr býtumLandsliðsþjálfari Austurríkis stjórnar Vogabúum í bikarkeppni HSÍUm 10 þúsund manns í grennd við gosstöðvarnarÍslandsmeistaramótið í sprettþraut á laugardaginn