sudurnes.net
Söfnun fyrir fjölskyldu Jóhannesar Hilmars - Local Sudurnes
Sett hefur verið í gang söfnun til styrktar fjölskyldu Jóhannesar Hilmars Jóhannessonar, sem lést af slysförum á Reykjanesbraut þann 7. júlí síðastliðinn, Jóhannes var 34 ára gamall og lætur eftir sig sambýliskonu og þrjú ung börn. Erfiðir tímar eru framundan hjá fjölskyldu hans. Við, vinir fjölskyldunnar leitum til ykkar um stuðning til að létta undir á þessum erfiðu tímum. Jóhannes var frábær fjölskyldufaðir, dugnaðarforkur, alltaf stutt í brosið hjá þessum ljúfa dreng. Einstaklega einlægur og hjálpsamur. Ég bið þig kæri lesandi að hugsa hvort þú getir eitthvað hjálpað til. Ef einhverra upplýsinga er óskað þá er hægt að hafa samband við mig í 699-7180. Reikningurinn er í nafni konu hans: Jóna Rut Gísladóttir Kt. 080282-3629 Reikn nr. 0542-14-405500 Með virðingu og gleðinni hans Jóa þökkum við kærlega! Þorsteinn Pálsson. Meira frá SuðurnesjumHeimilt verður að rífa nokkur hús við Hafnargötu samkvæmt nýju deiliskipulagiSamúel Kári til Valerenga – “Hentar okkar leikstíl mjög vel,” segir aðstoðarþjálfarinnLjósbogaofn USi enn ekki kominn í gang – Ráðast í endurbætur samhliða viðgerðumLeit við gossvæðið enn engan árangur borið – Lögregla leitar liðsinnis almenningsTónleikar til styrktar Guðmundi Atla í HljómahöllMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkStöðvaður á 176 km. hraða – Sviptur og fær 150 þúsund króna sektBjóða út [...]