Nýjast á Local Suðurnes

Snúa vörn í sókn og segja góðar sögur af Reykjanesi

Sögnkonan Greta Salóme tók upp tónlistarmyndband þar sem Reykjanesið leikur stórt hlutverk

Í júní síðastliðnum skrifuðu sveitarfélögin á Suðurnesjum undir samstarfssamning sem miðar að því að bæta ímynd svæðisins með sérstöku markaðsátaki. Ímynd svæðisins hefur of lengi einkennst af atvinnuleysi og neikvæðum fréttum. Nú er mál að linni og tímabært að snúa vörn í sókn. Markaðsátakið ber heitið Reykjanes – við höfum góða sögu að segja!

Mikill uppgangur er nú á Reykjanesi og með sameiginlegu átaki getum við snúið við neikvæðri umræðu og sýnt öðrum landsmönnum, fjölmiðlum, opinberum aðilum, fyrirtækjum og ekki síst íbúum Reykjaness fram á það að hér er gott að búa og starfa. Segir á Facebook-síðu átaksins.

Nokkur myndbönd hafa verið framleidd í tengslum við átakið, en enn er hægt að bæta við og geta allir komið ábendingum um góðar sögur af Reykjanesinu í gegnum netfangið frettir@visitreykjanes.is

Verkefnið er unnið undir formerkjum Sóknaráætlunar Suðurnesja