sudurnes.net
Snöggt og fumlaust viðbragð þegar vélarvana bátur stefndi upp í Bergið - Local Sudurnes
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst neyðarkall frá skipstjóra lítils fiskibáts sem sendi út neyðarkall laust eftir klukkan níu í morgun, en báturinn var þá vélarvana rétt utan við Keflavík og var við það að reka upp í bergið í norður af smábátahöfninni í Reykjanesbæ. Einn var um borð. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þegar í stað kölluð út á mesta forgangi en áhöfn þyrlunnar var að undirbúa æfingarflug og gat brugðist skjótt við og hélt þegar af stað á vettvang. Sjóbjörgunarsveitir á Suðurnesjum, á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar, voru jafnframt kallaðar út sem og lögregla. Skipstjóri báts sem var staddur í nágrenninu var einnig beðinn um að halda á staðinn. Klukkan 9:30, einungis rúmum tuttugu mínútum eftir að neyðarkallið barst, voru björgunarsveitir komnar með bátinn í tog. Á meðan var þyrla Landhelgisgæslunnar í viðbragðsstöðu á vettvangi ef á þyrfti að halda. Björgunarsveitir héldu með bátinn í höfnina í Reykjanesbæ en viðbragð allra sem að málinu komu var snöggt og fumlaust. Enginn leki virðist hafa komið að bátnum þrátt fyrir að hann hafi nuddast utan í bergið. Mynd: Landsbjörg. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Meira frá SuðurnesjumMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnBjörgunarsveitir af Suðurnesjum aðstoða við leit að [...]