sudurnes.net
Snjómokstur gengur hægar vegna bilana í tækjum - Local Sudurnes
Snjómokstur hefur gengið hægar í Reykjanesbæ en vonir stóðu til, ástæðan er sú að tæki hafa verið ebila og erfiðlega hefur gengið að færa tæki á milli hverfa. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sveitarfélaginu, sem sjá má í heild hér fyrir neðan. Því miður hefur snjóhreinsun í Keflavík og hluta af Tjarnar-og Dalshverfi ekki gengið nógu vel. Ástæðan er að snjómoksturstæki hafa verið að bila. Unnið er að því að færa til tæki á milli hverfa eins og hægt er. Það má því alveg búast við því að það náist ekki að hreinsa allar götur í dag eins og vonir stóðu til. Ef allt gengur upp þá mun þetta klárast á morgun. Við biðjum íbúa að sýna þolinmæði örlítið lengur. Við gerum okkur grein fyrir því að staðan er mjög slæm í mörgum götum. Meira frá SuðurnesjumEkki um alvarlega mengun að ræða við Flugvelli – Reykjanesbær sér um hreinsunSameinað Silicon fær heimild til nauðasamninga – Samningar ekki tekist við ÍAVUSi biðjast afsökunnar á lykt: “Hættuleg efni í skaðandi mæli berast ekki frá verksmiðjunni”Tæplega þúsund áætlunarflug um Keflavíkurflugvöll í desemberStrætóferðir falla niðurEr þetta eftirsóttasta lóðin í Reykjanesbæ? Hlutkesti fer fram milli umsóknaraðilaLögregla biður fólk um að hætta við fyrirhuguð afbrot [...]