Nýjast á Local Suðurnes

Smituðum fjölgar lítillega á Suðurnesjum – Forgangsraðað í sýnatökur

Einstaklingum sem smitaðir eru af kórónuveirunni fjölgaði lítillega undanfarinn sólarhring á Suðurnesjum eða um fjóra samkvæmt nýjustu tölum á vef Embættis landlæknis og Almannavarna, covid.is. Þannig eru nú 27 smit staðfest á Suðurnesjum og 268 einstaklingar sæta sóttkví.

Mun færri sýni hafa þó verið tekin á landinu síðasta sólarhringinn en áður og er forgangsraðað í sýnatökur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, eins og annarsstaðar á landinu, eftir tilmælum Landlæknis. Ekki er hægt að taka sýni hjá öllum sem uppfylla þau skilyrði sem til þarf, og sjá má hér fyrir neðan, og eru sýnatökur háðar mati læknis.

Suðurnesjamenn eru hvattir til að fylgja HSS á Facebook, en þar eru birtar nýjustu fréttir frá stofnuninni.