Slasaðist illa í andliti eftir fall af hlaupahjóli
Ungur drengur slasaðist nokkuð illa í andliti þegar hann datt á hlaupahjóli í síðustu viku en betur fór á en horfðist og telur móðir drengsins að hjálmur hafi skipt sköpum að ekki fór verr.
Í færslu á Facebook segir móðir drengsins meðal annars „Hann slasaðist, það þurfti að sauma hann, hann er nýfarinn að geta talað skýrt, tennurnar sluppu og það er hjálminum að þakka! Derið framan á tók höggið.“
Í samtali við Hringbraut, sem fjallar nánar um málið, segir móðirin að henni finnist allt of algengt að börn séu hjálmlaus og viðurkennir hún að hún fái sting í hjartað þegar hún sér barn á hjóli eða öðru farartæki án hjálms. Í frétt Hringbrautar segir jafnframt að drengurinn sé allur að koma til eftir óhappið.