sudurnes.net
Slasaðist eftir tveggja metra fall við vinnu í byggingavöruverslun - Local Sudurnes
Karlmaður slasaðist þegar hann féll af timburpalli í Reykjanesbæ. Maðurinn var við vinnu sína í byggingavöruverslun þegar óhappið varð. Fallið var um tveggja metra hátt og hlaut hann áverka í andliti auk þess sem talið var að hann hefði hugsanlega handleggsbrotnað. Hann var fluttur til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og lögregla tilkynnti Vinnumálastofnun um málið. Þá slasaðist ung stúlka í Íþróttaakademíunni í Krossmóum. Hún var talin hafa handleggsbrotnað eftir fall við æfingar. Meira frá SuðurnesjumHlaut höfuðáverka eftir fallHlaut opið beinbrot eftir fall úr stigaNokkrar bílveltur á Suðurnesjum – Einn fluttur á LandspítalaTveir fluttir á sjúkrahús eftir árekstur á GarðvegiHlaut beinbrot eftir 5 metra fall við SkessuhelliFluttur á bráðamóttöku Landspítala eftir mótorhjólaslysFluttur á bráðamóttöku Landspítala eftir vinnuslysFluttur á Landspítala eftir fall úr stiga15 milljónir til Suðurnesja vegna þrots WOWTæmdu dósasöfnunargám Þróttar í Vogum