Nýjast á Local Suðurnes

Skurðstofur á HSS verða alfarið lagðar niður – Ekki talið fýsilegt að uppfæra búnað

Heilbrigðisráðherra hefur samþykkt að skurðstofur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja verði teknar niður, en um er að ræða tvær skurðstofur sem voru í rekstri fyrir um áratug síðan. Önnur stofan hefur þó verið í útleigu, en ekki er talið fýsilegt að uppfæra þann búnað sem til þarf svo sú starfsemi geti haldið áfram.

Þetta kemur fram í pistli sem Markús Ingólfur Eiríksson, forstjóri HSS ritar á heimasíðu stofnunarinnar.  Þar kemur einnig fram að ljóst sé að mörgum muni finnast sjónarsviptir af því að leggja skurðstofurnar alfarið niður, en takmark stjórnenda og starfsfólks HSS verður að vera að standa vörð um grunnþjónustuna við íbúa, heilsugæsluna og bráðamóttökuna og þar eru húsnæðismálin okkar helsta áskorun.

Pistillinn í heild sinni:

Eins og starfsfólk HSS og íbúar Suðurnesja vita, var skurðstofustarfsemi HSS lögð af fyrir um áratug síðan. Á síðustu árum hefur stofnunin haft tekjur af útleigu á annarri skurðstofunni en hefur einnig þurft að taka á sig viðbótarkostnað á móti.

Nú er svo komið að ef ætlunin væri að halda starfsemi á skurðstofum gangandi, hvort sem það væri á vegum HSS, Landspítala eða aðila í einkarekstri eins og nú er, þyrfti að ráðast í kostnaðarsamar fjárfestingar við að uppfæra nauðsynlegan tækjabúnað.

Slíka fjármuni á HSS ekki til.

Gerðar voru athuganir á því hvort fýsilegt væri að uppfæra búnað skurðstofanna með það fyrir augum að nýta þær fyrir Landspítala. Þá kæmu áhafnir frá LSH til okkar til að framkvæma svokallaðar dagaðgerðir. Niðurstaða ráðuneytisins var sú að það reyndist ekki vera fýsilegt.

Þá var einnig athugað hvort Landspítali gæti nýtt eitthvað af tækjabúnaði skurðstofanna hjá sér og það reyndist heldur ekki vera.

Við munum hins vegar athuga hvort búnaðurinn gæti nýst okkur á öðrum stöðum í húsinu og loks verður athugað hvort aðrar heilbrigðisstofnanir geti nýtt eitthvað af honum.

Þannig er ljóst að skurðstofurnar verða ekki notaðar sem slíkar um fyrirsjáanlega hríð og heilbrigðisráðherra hefur því samþykkt að skurðstofurnar verði teknar niður.

Reiknað er með að síðustu skurðaðgerðirnar á HSS verði gerðar nú í lok nóvember næstkomandi.

Hins vegar eru mikil not fyrir það rými sem er nú undir skurðstofurnar, enda hefur húsnæðisskortur þrengt verulega að grunnstarfsemi HSS, heilsugæslu og bráðamóttöku, síðustu ár.

Við fulltrúar HSS áttum fund með Ríkiseignum í gær, fimmtudag, um framtíðarsýn húsnæðismála og næstu skref verða þau að húsnæðisnefndin hér innanhúss mun vinna málið áfram með aðkomu Ríkiseigna og þeirra deilda sem breytingarnar taka til.

Að fengnum niðurstöðum nefndarinnar munum við ráða arkitekt til að fullmóta tillögur sem við leggjum til við Ríkiseignir, sem mun bera bróðurpartinn af fyrirhuguðum kostnaði við endurbæturnar.

Það er ljóst að mörgum mun finnast sjónarsviptir af því að leggja skurðstofurnar alfarið niður, en takmark stjórnenda og starfsfólks HSS verður að vera að standa vörð um grunnþjónustuna við íbúa, heilsugæsluna og bráðamóttökuna og þar eru húsnæðismálin okkar helsta áskorun.

Bæði er það með beinum hætti, þar sem vöxturinn í þjónustuþörf á svæðinu hefur sprengt núverandi húsnæði utan af sér, og ekki síður með óbeinum hætti þar sem aðstaða og góður húsakostur er lykilatriði í að bæta fleira fagfólki við okkar góða hóp og bæta þjónustu við Suðurnesjafólk og gesti okkar.

Það er mín von að þessar aðgerðir muni loks höggva á hnútinn sem hefur haldið aftur af HSS í hartnær áratug og að innan tíðar verði hægt að sjá merkjanlegan mun á þeirri þjónustu sem við á HSS getum veitt hér í heimabyggð.