sudurnes.net
Skuldavandi vegna Eignarhaldsfélagsins Fasteignar rúmir 6 milljarðar króna - Local Sudurnes
Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ, Kjartan Már Kjartansson birti í kvöld pistil á heimasíðu sveitarfélagsins, þar sem hann útskýrir skuldavanda Reykjanesbæjar, í pistlinum kemur fram að bæjarstjórinn hafi orðið var við misskilning hjá fólki varðandi fréttatilkynningu sem send var út í byrjun febrúar um viðræður við kröfuhafa. Pistilinn er að finna í heild sinni hér fyrir neðan. Hver er skuldavandi Reykjanesbæjar? Í byrjun febrúar náðist mikilvægur áfangi í viðræðum Reykjanesbæjar við stærstu kröfuhafa sína og af því tilefni var send út sameiginleg fréttatilkynning til fjölmiðla. Í kjölfarið hef ég orðið var við misskilning hjá mörgum sem skildu fréttatilkynninguna þannig að fullgerðir samningar hefðu tekist um niðurfærslu skulda. Því miður er það ekki svo og ætla ég að reyna að skýra málið betur í nokkrum orðum. Um hvað náðist samkomulag? Áfanginn sem náðist fólst í því að langstærstu kröfuhafar sveitarfélagsins annars vegar og Reykjanesbær hins vegar komust að sameigilegri niðurstöðu um hver skuldavandi/niðurfærsluþörf Reykjanesbæjar er. Kröfuhafarnir eru fjármálastofnanir sem sameiginlega fjármögnuðu kaup Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf. á stórum hluta fasteigna Reykjanesbæjar, og fleiri sveitarfélaga, á árunum eftir 2003 sem síðan voru endurleigðar til sveitarfélaganna. Upphæð skuldavandans var ekki gerð opinber fyrr en í dag þar sem kynna þurfti niðurstöðuna fyrir fjölda annarra kröfuhafa sveitarfélagsins. Þeirri vinnu er [...]