sudurnes.net
Skrifað undir samstarfssamning um FabLab - Local Sudurnes
Í gær var skrifað undir samning um stofnun FabLab smiðju sem verður staðsett í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og tekur til starfa í haust. Það voru Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sem undirrituðu samninginn ásamt bæjarstjórum sveitarfélaganna fjögurra á Suðurnesjum og forstöðumönnum þeirra mennta- og rannsóknarstofnana á Suðurnesjum sem eiga aðild að smiðjunni. Skrifað var undir samninginn á sal skólans en þar voru m.a. þingmenn kjördæmisins og sveitarstjórnarmenn viðstaddir. Kristján Ásmundsson skólameistari bauð gesti velkomna og ráðherrarnir Áslaug Arna og Ásmundur Einar fluttu ávörp ásamt Berglindi Kristinsdóttur, framkvæmdastjóra Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Að lokinni undirritun samningsins þáðu gestir veitingar í boði skólans og fögnuðu áfanganum. Hægt er að sjá meira um FabLab smiðjuna í frétt á vef skólans:https://www.fss.is/is/skolinn-starfid/annad/frettir/saman-stofnum-vid-fab-lab-sudurnesja Meira frá SuðurnesjumHinsegin vika í GrindavíkGestum Kvikunnar fjölgað verulegaHalda ráðstefnu um Heilsueflandi samfélag í ReykjanesbæFái frítt í sund gegn gjaldiPáskaganga Bláa Lónsins og Grindavíkurbæjar á annan í páskumHefja samstarf um fjölþætta heilsueflingu fyrir eldri borgaraAllt seldist upp og tæki biluðu á opnunarhelginniÞekktur fyrirlesari með ókeypis foreldranámskeiðSamkeppni um best skreytta húsið og best skreyttu götunaÓkeypis ráðgjöf um markaðssetningu handverks