Nýjast á Local Suðurnes

Skrapp frá og var rændur á meðan

Lögreglunni á Suðurnesjum barst í gærkvöld tilkynning um innbrot í íbúðarhúsnæði í umdæminu. Húsráðandi kvaðst sakna flatskjás, leikjatölvu, fartölvu og fleiri muna.

Hann hefði farið frá án þess að læsa íbúðinni og þegar hann hefði snúið aftur hefði allt verið á hvolfi og umræddir munir horfnir. Málið er í rannsókn.