Skjálfti fannst víða
Jarðskjálfti af stærð 4,1 varð klukkan 4:33 í nótt. Skjálftinn átti upptök sín um 8 km norðaustur af Reykjanestá.
Nokkrir eftirskjálftar fylgdu í kjölfarið. Tilkynningar bárust til jarðvársviðs Veðurstofu Íslands af Reykjanesi og höfuðborgarsvæðinu um að skjálftinn hefði fundist þar.