Nýjast á Local Suðurnes

Skessuskokk á laugardag

Laugardaginn 30. apríl næstkomandi klukkan. 11:00 mun Skessuskokkið fara fram en þessi viðburður er hugsaður sem hvetjandi heilsuefling fyrir alla fjölskylduna.

Það verður gengið eða skokkað frá Hafnarvoginni við Keflavíkurhöfn, niður Básveg og út í smábátahöfnina.  Um er að ræða skemmtilega 1,5 km langa gönguleið þar sem allir geta tekið þátt.

Allir sem ljúka Skessuskokkinu fá stimpil í BAUNAbréfið og ís frá Ísbílnum í verðlaun. Fígúrur frá Leikfélagi Keflavíkur munu sjá um skemmtilega upphitun og að hvetja þátttakendur áfram í Skessuskokkinu.

BAUN, barna- og ungmennahátíð í Reykjanesbæ sem er hátíð fyrir börn og fjölskyldur sem haldin er í byrjun maí ár hvert. Markmiðið er að börn og fjölskyldur geti gert ýmislegt skemmtilegt saman tengt barnamenningu.

Frekari upplýsingar um sérstaka viðburði á BAUNinni verða birtar á vefsíðunni Visit Reykjanesbær undir en þar má einnig sjá alla dagskránna.