sudurnes.net
Skert starfsemi vegna skorts á læknum - Local Sudurnes
Aðeins einn læknir var á bakvakt á bráðamóttöku Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja eftir klukkan sex í gærkvöldi þangað til klukkan átta í morgun. Á meðan var starfsemi bráðamóttökunnar skert. Aðeins var hægt að sinna alvarlega bráðum veikindum og fólk var beðið um að hafa samband við upplýsingamiðstöð Heilsugæslunnar áður en leitað var til bráðamóttöku. Þetta kemur fram í frétt á vef RÚV, en þar var rætt við Fjölni Frey Guðmundsson, framkvæmdarstjóra lækninga hjá HSS, sem sagði að ekki hafi verið hægt að manna vaktina vegna læknaskorts. Fjölnir segir vandan vera tímabundinn og hafi áhrif á fáar vaktir. Búið sé að manna næturvaktirnar næstu daga en mönnunarvandinn gæti haft áhrif á einstaka vaktir þangað til leyst verður úr honum. Meira frá SuðurnesjumGrindavík og Þróttur Vogum nýttu lokadaga félagaskiptagluggans velÞróttur Vogum semur við landsliðsmann frá FæreyjumNesfisktogara siglt til hafnar vegna gruns um smitLoka leiðinni um Höskuldarvelli – Fólk forðist að vera á svæðinuMeð bakþanka um starfssemi í Reykjanesbæ vegna umræðu um eldsumbrotEldgos hafið – Virðist vera nærri HagafelliHerða reglur á HSS á nýLoka leikskóla vegna raka- og mygluvandamálaDrög að svari frá lífeyrissjóðum liggja fyrir – Búist við löngum bæjarstjórnarfundiFólk hvatt til að hafa samband áður en mætt er á HSS