sudurnes.net
Skemmtiferðaskip í Grindavíkurhöfn - Local Sudurnes
Í gær átti sér stað nokkuð merkilegur atburður í sögu Grindavíkurhafnar en þá lagðist skemmtiferðaskipið Ocean Nova að bryggju í fyrsta skipti. Hér er að vísu ekki um hefðbundið skemmtiferðaskip að ræða, segir á heimasíðu Grindavíkurbæjar, ekki er um að ræða risastórt fljótandi lúxushótel sem flytur hundruði farþega milli sólríkra áfangastaða heldur öllu minna skip, sérútbúið til siglinga á norðurslóðum. Farþegar um borð eru 78. Skipið heitir Ocean Nova, smíðað í Danmörku árið 1992 og var sérstaklega smíðað með siglingar innan um ísjaka á Grænlandshafi í huga. Þrátt fyrir að vera ekki hefðbundið skemmtiferðaskip er það engu að síður ríkulega búið og aðstaða þar öll eins og best verður á kosið. Um borð er fullkomin aðstaða til að fylgjast með náttúrunni, stór vetingasalur, bókasafn og sjúkraaðstaða. Meira frá SuðurnesjumVarað við slæmu veðri næstu daga – Spáin þó góð fyrir gamlárskvöldSuðurnesjamenn veðsetja eignir sínar mest allraÍstak bauð lægst í stækkun suðurbyggingar FLESlökkt á gatnalýsingu í sumar – Verður “rómó” tímabil í lok júlíNýr og breyttur Fjölnir GK 157 kom til heimahafnar í gærKynna nýjan grunn- og leikskóla í Dalshverfi – Efna til nafnasamkeppniÍ sóttkví eftir Ítalíuferð – “Frábrugðið að þurfa að halda fjárlægð frá sjö ára dótturinni”Fjögurra bjóra hlaup á bæjarhátíðHUG-Verktakar [...]