Nýjast á Local Suðurnes

Skemmti­bát­ur sökk við Vog­astapa – Tveir fluttir á sjúkrahús með þyrlu

Skemmti­bát­ur með tvo menn um borð sökk und­an Vog­astapa, á milli Voga og Njarðvík­ur í kvöld. Að sögn Land­helg­is­gæsl­unn­ar virðist sem menn­irn­ir tveir hafi náð að synda sjálf­ir í land.

Þyrla Landhelgisgæslunnar kom á svæðið og tók menn­ina um borð og flutti þá á sjúkra­hús þar sem hún lenti með þá klukk­an rúm­lega tíu í kvöld. Ekki er vitað hversu lengi menn­irn­ir voru í sjón­um, en þeir eru ómeidd­ir en bæði blaut­ir og kald­ir.