Skemmdarvargur klippir á ljósleiðarastrengi og tekur brunakerfi úr sambandi
Klippt var á ljósleiðarastrengi og fjarskiptakapla Kapalvæðingar á Ásbrú í dag með þeim afleiðingum að fjöldi fólks varð netsambandslaus. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu Kapalvæðingar, en þar á bæ hvetja menn íbúa til að fylgjast með umferð í kringum ákveðin fjölbýlishús.
Þá er tekið fram að ekki sé einungis klippt á netkapla heldur séu brunakerfi og dælur fyrir ofnakerfi fjölbýlishúsa einnig tekin úr sambandi.
Kapalvæðing heitir þeim sem veita upplýsingar sem leiða til þess að skemmdarvargarnir finnist ókeypis nettengingu og sjónvarpsáskrift.