sudurnes.net
Skel og Samkaup framlengja viðræðum um samruna - Local Sudurnes
Fjárfestingafélagið Skel og Samkaup hafa ákveðið að framlengja sam­runa­við­ræðum, sem hafa staðið yfir undanfarið til 15. maí næstkomandi, en niðurstöður áttu að liggja fyrir á föstudag. „Í ljósi þess að við­ræður aðila, sem lúta m. a. að heildar­mati á við­skipta­legum og sam­keppnis­legum sjónar­miðum, eru yfir­standandi hafa aðilar komist að sam­komu­lagi um að fram­lengja,” segir í Kaup­hallar­til­kynningu. Fjár­festinga­fé­lagið, sem stýrt er af Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, stofnanda Bónus, hefur í huga að sam­eina Sam­kaup við Orkuna og Heim­kaup, sem eru nú þegar í eigna­safni Skeljar. Sam­kaup, sem er með höfuðstöðvar í Reykjanesbæ, rekur 64 mat­vöru­verslanir víðs vegar um landið undir fjórum vöru­merkjum: Sam­kaup, Nettó, Kjör­búðin og Iceland. Meira frá SuðurnesjumMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkMögulegt greiðslufall hjá ReykjaneshöfnIsavia sameinar vörumerki og breytir um ásýndMóðurfélagið fær byggingarnar í Helguvík í 15 milljarða gjaldþrotiSamkaup fá reynslubolta frá Arion bankaEigendur Bláa lónsins þátttakendur í ylstrandarverkefni við UrriðavatnSkólamatur í baráttu gegn matarsóun – Keyptu mikið magn af gulrótum sem átti að fargaHópferðir Sævars aka skólabörnum í sund – Rúmlega átta milljóna króna ávinningurSalan á Óla á Stað GK: “Bæjarráð Grindavíkur brást skyldum sínum”Fyrrum Kadecoforstjóri kaupir álversbyggingu í Helguvík