Nýjast á Local Suðurnes

Sjómannaverkfall: Ábyrgð þeirra sem fara með samningsumboð er mikil

Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar skorar á útgerðarmenn og sjómenn að einhenda sér í að ná samningum  og binda endi á verkfall sjómanna svo flotinn komist til veiða á ný.

Er það mat bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar að langvarandi verkfall skaði íslenskan efnahag; útgerð, sjómenn, fólk í fiskvinnslu, flutningsaðila og samfélögin  við sjávarsíðuna. Í áskoruninni segir einnig að ábyrgð þeirra sem fara með samningsumboð sé mikil og krafan á samningsaðila er að gera allt það sem mögulegt er til að ná samningum.