sudurnes.net
Sjö dansarar frá DansKompaní keppa á heimsmeistaramótinu - Local Sudurnes
Allir sjö dansar frá DansKompaní sem tóku þátt í undankeppni heimsmeistaramótsins í dansi komust inn í landslið Íslands í dansi. Heimsmeistaramótið verður haldið í Portúgal í sumar. Þá unnu stúlkurnar sérstök dómaraverðlaun sem veitt eru fyrir besta hópatriðið. Jórunn Björnsdóttir mun keppa fyrir Íslands hönd í aldursflokki undir 13 ára. Sóley Halldórsdóttir keppir í aldursflokki undir 13 ára, Sonja Bjarney Róbertsdóttir Fisher keppir í aldursflokki undir 25 ára, Júlía Mjöll Jensdóttir keppir í aldursflokki undir 17 ára og undir 25 ára, Ingibjörg Sól Guðmundsdóttir keppir í aldursflokki undir 25 ára, Díana Dröfn Benediktsdóttir keppir í aldursflokki undir 25 ára og Elma Rún Kristinsdóttir keppir í aldursflokki undir 25 ára. Meira frá SuðurnesjumMinningastund III á LjósanóttÓhagnaðardrifið leigufélag sækir um lóðir í ReykjanesbæFrumhönnun nýs sundlaugarsvæðis kynnt – Sjáðu myndirnar!Öflugir ungir leikmenn semja við NjarðvíkKeflavík semur við unga og efnilega leikmennElvar Már nálægt því að slá 17 ára gamalt skólamet – Skoraði 43 stig gegn TampaDanski skatturinn lýsir eftir eigendum sparifjár – Suðurnesjafólk á listanum!Körfukaffi á 17. júní í Njarðvík og KeflavíkÞökkuð vel unnin áratuga störfLoka Svarta pakkhúsinu og opna Duus handverk í Grófinni