sudurnes.net
Sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu - Aka þurfti lögreglubifreið utan í bifreiðina - Local Sudurnes
Ökumaður sem staðinn var að hraðakstri á Reykjanesbraut í vikunni sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu svo veita þurfti honum eftirför til að ná tali af honum. Bifreið hans mældist á 138 km hraða við Vogastapa þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Lögregla veitti honum eftirför til Keflavíkur og ók hann áfram inn í bæinn. Gripið var til þess ráðs að aka lögreglubifreið utan í bifreið hans, því hann var kominn á akbraut þar sem í námunda var mikil umferð akandi og gangandi. Við það stöðvaði hann aksturinn. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð. Óverulegar skemmdir urðu á bifreiðunum. Auk þessa ökumanns voru átta kærðir fyrir of hraðan akstur, einn þeirra réttindalaus. Loks ók einn ökumaður sviptur réttindum og skráningarnúmer voru fjarlægð af fáeinum bifreiðum sem ekki voru tryggðar eða skoðaðar. Meira frá SuðurnesjumErlendur ferðamaður á hraðferð fékk 100 þúsund króna sektTekinn við hraðakstur á brautinni – Greiddi 130.000 króna sekt á staðnumTólf kærðir fyrir hraðakstur – Sá sem hraðast ók fær 150.000 króna sektTekinn á tæplega 160 km hraða – Hefur aldrei öðlast ökuréttindiDýrkeyptur hraðakstur og svipting ökuleyfisÁkærður fyrir að aka á 192 km hraða undir áhrifum amfetamíns17 ára ökumaður á mældist á 159 km. hraðaÁ von á [...]