sudurnes.net
Sigurður verður aðal - Eysteinn út og Haraldur inn - Local Sudurnes
Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur komist að samkomulagi við Sigurð Ragnar Eyjólfsson um að hann verði aðalþjálfari meistarflokks karla hjá félaginu. Honum til aðstoðar verður Haraldur Guðmundsson sem þjálfað hefur meistaraflokk karla hjá Reyni Sandgerði síðustu ár. Knattspyrnudeild Keflavíkur þakkar Eysteini Húna Haukssyni, öðrum aðalþjálfara liðsins síðustu tvö ár, fyrir frábær störf í þágu meistaraflokksins síðustu ár en hann tók við liðinu á erfiðum tíma um mitt sumar 2018 eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari þar áður. Eysteinn og Sigurður Ragnar komu Keflavíkurliðinu upp úr Lengjudeildinni í fyrra og héldu liðinu í deildinni á liðnu sumri. Eysteinn Húni starfar ennþá hjá yngri flokkum Keflavíkur og er í viðræðum við félagið um stærra hlutverk í afreksstarfi félagsins, segir í tilkynningu. Sigurður Ragnar Eyjólfsson verður aðalþjálfari félagins en hann hefur verið þjálfari liðsins ásamt Eysteini síðan í lok árs 2019. Sigurður hefur mikla reynslu af þjálfun, en hann náði eftirtektarverðum árangri með íslenska kvennalandsliðið á sínum tíma og hefur einnig þjálfað í Kína og Noregi auk félagsliða á Íslandi.Sigurði til aðstoðar verður Haraldur Guðmundsson, fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu og leikmaður og fyrirliði Keflavíkur til margra ára. Haraldur hefur þjálfað lið Reynis Sandgerði með góðum árangri síðustu ár, tók við þeim í fjórðu efstu deild og [...]