Forstjóraskipti hjá ÍAV – Sigurður tekur við af Karli
Sigurður R. Ragnarsson mun taka við stöðu forstjóra ÍAV, en Karl Þráinsson sem hefur verið forstjóri fyrirtækisins undanfarin ár mun áfram sitja í stjórn félagsins auk þess sem hann tekur við stöðu stjórnarformanns.
Sigurður hefur starfað hjá ÍAV síðan árið 2006, þar af sem framkvæmdastjóri tæknisviðs á árunum 2011 til 2013 og framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs frá 2014.
ÍAV er eitt stærsta og öflugasta verktakafyrirtæki landsins og hefur verið þátttakandi á öllum sviðum byggingariðnaðar og mannvirkjagerðar á Suðurnesjum frá stofnun forvera þess, Íslenskra aðalverktaka sf. árið 1954.
Fyrirtækið er enn með umfangsmikla starfsemi á Suðurnesjum en fyrirtækið er með verkefni í tengslum við byggingu kísilvera í Helguvík, þjónustusamninga við HS Veitur og HS Orku auk þess sem fyrirtækið rekur malarvinnslur í Stapafelli og Rauðamel á Suðurnesjum.
ÍAV hf er nú alfarið í eigu Marti Holding AG frá Sviss, Marti Holding á um 80 fyrirtæki víðsvegar um heim sem eru öll rekin sem sjálfstæðar einingar.