Nýjast á Local Suðurnes

Sex í gæsluvarðhaldi vegna fíkniefnamála

Sex einstaklingar sæta nú gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglunnar á Suðurnesjum á jafn mörgum málum er varða innflutning á fíkniefnum. Sérstökum áhyggjum veldur að í tveimur aðskildum málum sem lögregla hefur haft til rannsóknar er um að ræða tvo pilta rétt um tvítugsaldur og í þriðja málinu var gerð tilraun til að smygla heróíni til landsins.

Hvor piltanna fyrir sig hafði rúmlega kíló af kókaíni í fórum sínum við komuna hingað til lands. Þá reyndist einn karlmaður til viðbótar sem var að koma frá Köln vera með 105 pakkningar innvortist og innihéldu þær samtals rúmlega kíló af kókaíni. Fjórði maðurinn var með tæpan lítra af amfetamínbasa í flösku undan viskíi í farangrinum. Aðrir í þessum hóp, sem sæta rannsókn vegna fíkniefnamála voru með mun minna magn.

Umrædd mál varða samtals 3.7 kíló af kókaíni, lítilræði af heróíni og nær einn lítra af amfetamínbasa sem hægt hefði verið að framleiða um 3 kíló af amfetamíni úr. Mennirnir sem um ræðir voru allir stöðvaðir af tollgæslunni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar við komuna til landsins.