Nýjast á Local Suðurnes

Setja upp færanlegan ratsjárbúnað á Miðnesheiði

Í ár verða ratsjáreftirlitskerfin hér á landi uppfærð og er verkefnið að mestu fjármagnað af Mannvirkjasjóði Atlantshafsbandalagsins.

Til að tryggja að eftirlit með loftrýminu sé órofið flutti kanadíski flugherinn færanlegan ratsjárbúnað hingað til lands. Starfsmenn Landhelgisgæslunnar á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og 30 liðsmenn kanadísku sveitarinnar hafa undanfarnar vikur unnið að uppsetningu búnaðarins sem staðsettur er á Miðnesheiði.

Framlag Kanada er þýðingarmikið og endurspeglar mikilvægt samstarf þjóðanna, samstöðu aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins og mikilvægi þess fyrir bandalagið. Afar brýnt er að á Íslandi sé virkt loftrýmiseftirlit alla daga ársins. Ratsjárstöð kanadíska flughersins tryggir að svo verði áfram meðan unnið er að uppfærslunni. Landhelgisgæslan er þakklát kanadísku flugsveitinni og framlagi hennar til verkefnisins.

Meðfylgjandi myndir tók ljósmyndari kanadíska flughersins.