Sérsveitin tíður gestur á heimilum hælisleitenda
Vera hælisleitenda á gistiheimili á Ásbrú hefur verið töluvert til umræðu að undanförnu, en tíðir þjófnaðir í sveitarfélaginu hafa að einhverju leyti verið raktir til þeirra auk þess sem Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð að híbýlum þeirra síðastliðinn laugardag.
Þá hefur aukinn sýnileiki vopnaðrar sérsveitar og sérstakar ráðstafanir lögreglu á fjölmennum samkomum á höfuðborgarsvæðinu í sumar hafa verið talsvert til umræðu að undanförnu, en þær ráðstafinir má meðal annars rekja til fjölda hælisleitenda á landinu.
Sérsveit ríkislögreglustjóra var nokkrum sinnum kölluð að híbýlum hælisleitenda á Kjalarnesi, en stærstu málin rötuðu í fjölmiðla, í september 2016 og í júní á þessu ári, rétt áður en úrræðið fyrir þennan fjölmenna hóp var flutt á Ásbrú.
Þá greindi Jón Bjartmarz, yfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra frá því fyrr í sumar að verkefnum sérsveitarinnar hafi fjölgað hratt, meðal annars vegna mikillar fjölgunar í röðum hælisleitenda hér á landi.
„Það eru miklu fleiri í landinu en var þegar við vorum með 712 lögreglumenn árið 2007 og kannski 300.000 útlendinga. Í dag erum við með ekki bara með næstum því tvær milljónir ferðamanna, heldur líka með tugþúsundir í erlendu vinnuafli og það fjölgar mikið í röðum hælisleitenda,“ segir Jón í frétt á vef mbl.is.