Sérstaklega annasamur september hjá Brunavörnum Suðurnesja - Local Sudurnes
September var sérstaklega annasamur hjá Brunavörnum Suðurnesja, en farið var í 317 útköll á sjúkra- og/eða slökkviliðsbílum. Þar af voru 35 útköll á hæsta forgangi og 55 á næsthæsta forgangi. Önnur útköll voru með minni forgangi. Þetta kemur fram í stöðufærslu stofnunarinnar á Facebook, en þar segir að sunnudagurinn 29. september hafi verið sérstaklega annasamur. Þann dag var slökkviliðið kallað út vegna elds í sumarhúsi í Hvassahrauni og á sama tíma komu fjórir sjúkraflutningar með hæsta og næst hæsta forgangi, voru þá mannaðir fjórir sjúkrabílar með mannskap sem voru á frívakt til að sinna þeim útköllum. Meira frá SuðurnesjumSkora á fólk að setja bangsa út í glugga – Lúlli löggubangsi situr vaktina á HringbrautBirta áhugavert myndband frá framkvæmdum við flugstöðinaFáir nota endurskinsmerkiVildi leggja 5,5 milljónir inn á reikning lögreglumannsÖkumenn hafa lent í vandræðum í slæmu skyggniSuðurnesjalöggur með leikhæfileika kynna ný umferðarlögGuðbrandur tekjuhæstur sveitarstjórnarmannaEigum fyrrum leigjanda hent á haugana – “Verðmætara en í aurum er talið”Skipuleggja mótmæli við ReykjanesbrautLjósmæður fengu flottar gjafir – “Hlýhugur sem snertir okkur djúpt”