sudurnes.net
Sendinefnd ESB hreinsaði rusl í Grindavík - Tonn af rusli á þremur tímum - Local Sudurnes
Sendinefnd ESB á Íslandi stóð því fyrir því í síðustu viku að hreinsa fjöruna fyrir neðan Hraun, austan við Grindavík, ásamt Bláa hernum og nokkrum sendiráðum ESB-landanna á Íslandi: Danmörku, Frakklandi, Svíþjóð og Þýskalandi. Blái herinn óskaði eftir því að fá að koma ásamt sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi og halda áfram að hreinsa strandir við Grindavík. Blái herinn hefur komið bæði í vor og nú í sumar og hreinsað í Hópsnesinu og síðan í Þórkötlustaðarfjörunni. Plastmengun í hafinu er orðið verulegt áhyggjuefni og hafa menn spáð því að verði ekkert að gert muni verða meira plast í sjónum en af fiski árið 2050. Langmest af ruslinu sem hreinsað var kemur frá fyrirtækjum úr sjávarútvegi en furðulega mikið úr skotveiðimennsku segir í frétt á Facebook síðu sendinefndarinnar. Á rúmlega þremur tímum týndu þau hátt í tonn af rusli. Meira frá SuðurnesjumGrenndargámar komnir upp á SuðurnesjumÁrlegt morgunverðarhlaðborð Kkd. Keflavíkur á laugardagÞungfært innanbæjar – Hvetja ökumenn á illa búnum bílum til að vera ekki á ferðinniHreinsuðu rusl frá Innri-Njarðvík að Flugstöð Leifs EiríkssonarReykjanesbær og Nexis í samstarf – Stuðlar að bættri heilsu og auknum lífsgæðumÞað breytir lífi þínu að heimsækja Grindavík að mati Inc. MagazineMikið álag á vaktstöðvum VegagerðarinnarKanadískir flugmenn afhentu Umhyggju söfnunarfé – Stoltir af [...]