sudurnes.net
Sektuð fyrir að nota upplýsingakerfi lögreglu í eigin þágu - Local Sudurnes
Landamæravörður í landamæradeild lögreglustjórans á Suðurnesjum, kona á fertugsaldri, hefur verið dæmd til greiðslu sektar fyrir að fletta upp málum í lögreglukerfinu LÖKE tengdum fyrrverandi kærasta sínum og málum konu sem landamæravörðurinn hafði átt í samskiptum við vegna lögreglumáls. Frá þessu er greint á vef Héraðsdóms Reykjaness, en í dómnum kemur fram að konan hafi játað háttsemi sína en neitað sök þar sem hún hefði ekki notfært sért upplýsingarnar sem hún fékk úr LÖKE. Dómari málsins féllst ekki á það og var konan dæmd til greiðslu 100 þúsund króna sektar. Meira frá SuðurnesjumPar í gæsluvarðhaldi vegna gruns um gróf kynferðisbrot gegn ungum börnumMikil slysahætta á vinsælu útivistarsvæði barnaTekin í “græna hliðinu” með kókaínFríir Smassborgarar á línuna skori Njarðvík 100 stigYfir 100 starfsmenn Isavia tóku þátt í LífshlaupinuSunneva og Eydís hefja keppni á Evrópuleikunum í sundiForstjóri Stolt Sea Farm: “Framleiðslan á Íslandi lofar góðu”Innbrotsþjófar staðnir að verkiRúmlega 100 hermenn á leið til landsinsReykjanesbær leitar að fulltrúum til að taka þátt í Útsvari