sudurnes.net
Segja Tortólafélag koma að rekstri hótels í Reykjanesbæ - Local Sudurnes
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi bankastjóri Kaupþings, hefur stundað umfangsmikil viðskipti á Íslandi í gegnum Stefni, sjóðsstýringarfélag í eigu Arion banka. Ferðaþjónustufyrirtæki Hreiðars Más og tengdra aðila hefur síðastliðin ár verið í eigu Tortólafélags sem eiginkona hans á, segir í nýjasta tölublaði Stundarinnar. Viðskiptin eru sögð sérstaklega umfangsmikil í Stykkishólmi en teygja anga sína einnig á Suðurnesin þar sem fyrirtæki í hans eigu, Gistiver ehf., rekur Hótel Berg sem staðsett er við smábátahöfnina í Gróf. Kynning: Það er fátt betra en kubbaður hvítlaukur Gréta Sigurðardóttir, móðir Hreiðars og einn eigenda Gistivers ehf. sagði kaupverðið vera trúnaðarmál í samtali við Suðurnes.net, þegar kaupin gengu í gegn, en samkvæmt frétt sem birtist í prentútgáfu DV á þeim tíma er kaupverðið talið vera um 200 milljónir króna. Hótelið hefur verið stækkað mikið frá því Kaupþingsforstjórinn fyrrverandi keypti hótelið, enda sagði Gréta í samtali við Suðurnes.net að markmiðið með kaupunum væri að byggja á góðu starfi fyrri eigenda og efla reksturinn á komandi árum. Meira frá SuðurnesjumFyrrum forstjóri Kaupþings fjárfestir í hótelrekstri í ReykjanesbæLögregla telur öryggi Atla Más ógnað vegna umfjöllunar um undirheimaFöstudagsÁrni: Máttvana verkalýðsfélög og forsetakosningarForsetinn flokkar póstinn hans Atla MásStækka Hótel Berg – “Markmiðið að gera gott hótel enn betra”Arnór Ingvi í landsliðshópnum en Ingvar hvílirHelga Ragnheiður millistjórnandi ársinsElvar Már einn besti leikmaður [...]