sudurnes.net
Segir Reykjanesbæ kominn að þolmörkum - Local Sudurnes
Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ, Kjartan Már Kjartansson, segir sveitarfélagið komið að þolmörkum varðandi móttöku flóttamanna og ekki geta tekið við fleiri. Bæjarstjórinn ræddi móttöku flóttafólks í Kastljósi, ásamt bæjarstjóra Hafnarfjarðar í gærkvöldi. Reykjanesbær tekur, líkt og alþjóð veit, við hlutfallslega fleiri umsækjendum um vernd en flest önnur sveitarfélög og sagði Kjartan Már meðal annars að álag á skólakerfi og almenningssamgöngur væri mikið. Báðir bæjarstjórar voru sammála um að ríkið þyrfti að koma að því að aðstoða sveitarfélögin í skólamálum. Í máli Kjartans Más kom fram að um 1100 flóttamenn væru búsettir í Reykjanesbæ um þessar mundir og að sveitarfélagið gæti ekki tekið á móti fleirum. Meira frá SuðurnesjumMár og Ísold fá annað tækifæriHátíðardagskrá með óhefðbundnu sniðiMikið álag og verkefnum forgangsraðað eftir alvarleikaGríðarlegt álag á bílstjórum – Leggur til að strætókortum flóttafólks verði lokaðSegir samning við Útlendingastofnun skapa álag á innviði ReykjanesbæjarMár og Iva á toppinn með BarnPólverjar una hag sínum vel á SuðurnesjumViðrar vel til hátíðarhalda á þjóðhátíðardaginnSegja Tortólafélag koma að rekstri hótels í ReykjanesbæReglur koma í veg fyrir að hægt sé að styrkja afreksíþróttafólk í undirbúningi fyrir ÓL