sudurnes.net
Sbarro opnar á KEF - Local Sudurnes
Veitingastaðurinn Sbarro hefur opnað á Keflavíkurflugvelli. Um er að ræða svokallað pop-up rekstrarrými á verslunar- og veitingasvæði sem verður starfrækt tímabundið á flugvellinum. Boðið verður upp á úrval af nýbökuðum pizzum og pastaréttum ásamt sérstökum morgunverðarréttum. „Opnun Sbarro hefur farið fram úr væntingum og við upplifum mikla ánægju viðskiptavina með veitingastaðinn,“ segir Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir, deildastjóri verslana og veitinga hjá Isavia, í tilkynningu frá fyrirtækinu. Sbarro veitingastaðurinn verður til eins árs á fyrstu hæð í suðurbyggingu Keflavíkurflugvallar og mun þjónusta farþega sem eru á leið frá landa utan Schengen-svæðisins. Sbarro er einnig með útibú í 10-11 í komusal Keflavíkurflugvallar. Meira frá SuðurnesjumFjölsmiðjan stækkar Kompuna – Bjóða upp á meira úrval af stærri hlutumGorilla mætt á HafnargötuJólamarkaður Kompunnar opnar í dag – Mikil aðsókn undanfarin árLeoncie hafnar tilboði frá MTV – “Samningurinn ekki nógu stór fyrir mig”Ókeypis ráðgjöf um markaðssetningu handverksAllt seldist upp og tæki biluðu á opnunarhelginniMilljarður rís í Hljómahöll 17. febrúarFái frítt í sund gegn gjaldiPáskaganga Bláa Lónsins og Grindavíkurbæjar á annan í páskumJólahús Sandgerðis 2016 – “Það vekur upp barnslega gleði að labba framhjá Heiðarbraut 4”