Sandgerðisbær gefur frí frá hádegi í dag - Local Sudurnes
Bæjarráð Sandgerðisbæjar hefur samþykkt að starfsmönnum Sandgerðisbæjar verði gefið frí frá hádegi 19. júní 2015 í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar íslenskra kvenna, þetta kemur fram í tilkynningu frá sveitarfélaginu. Skipulögð hátíðahöld eru áformuð víða um land þennan dag og með því að gefa frí er starfsmönnum Sandgerðisbæjar gefinn kostur á að taka þátt í þeim. Stofnanir bæjarins verða því lokaðar frá hádegi 19.júní en öll neyðarþjónusta verður til staðar. Sandgerðisbær vill með þessu hvetja starfsmenn bæjarins til að taka þátt í hátíðarhöldunum. Meira frá SuðurnesjumStefnir í allt að 18 gráður á Suðurnesjum í dagKadeco selur eignir fyrir fimm milljarða króna – Gefa ekki upp hver kaupirAllir með! hefst í dagEyþór Ingi heldur aukatónleikaMeirihluti vill leyfa ber brjóst í laugunumDeloitte kynnir Fast 50 og Rising star verkefnin á ÁsbrúTrampólín- og tunnufjúkveður í kortunumMögulega hált á vegum um helginaBlöðrur á LjósanóttFjölga bílstjórum hjá vefverslun og sótthreinsa innkaupakerrur