sudurnes.net
Samráð um skógrækt - Local Sudurnes
Reykjanesbær vinnur nú að uppgræðslu- og skógræktaráætlun fyrir sveitarfélagið, í samstarfi við Land og skóg. Markmið áætlunar er að búa til aðgerðaráætlun til að auka gróður, bæta nærviðri og auka lífsgæði bæjarbúa sem og annarra sem ferðast um bæinn, segir í tilkynningu. Mikilvægur grundvöllur fyrir áætlanagerð sveitarfélagsins er samráð við íbúa. Með virkri þátttöku vonumst við til þess að íbúar komi sínum ábendingum til skila. Uppgræðslu- og skógræktargátt verður opin til 26. apríl og má senda inn ábendingar á vef sveitarfélagsins. Meira frá SuðurnesjumLeiðinlegir íbúar Innri Njarðvíkur sameinast – “Skemmtilegast að ræða lausagöngu dýra”Heimsóttu 26 sundlaugar og gáfu einkunn – Suðurnesjalaugar komu vel útSuðurnesjabær gerist Heilsueflandi samfélagSamkaup lækka verð á yfir 400 vörunúmerumKynning – Gróðurmoldin afgreidd beint af kranaReykjanesbær og Nexis í samstarf – Stuðlar að bættri heilsu og auknum lífsgæðumReykjanesbær verði heilsueflandi samfélagAllir komnir með nýjar tunnur og flokkun hefst af fullri alvöruÆrslabelgur á ÁsbrúVilhjálmur leikur með Njarðvík út tímabilið