Samkaup lækka verð á yfir 400 vörunúmerum
Samkaup tilkynntu á dögunum að verð yrði lækkað á fleiri en 400 vörunúmerum undir merkjum Änglamark og X-tra í öllum verslunum fyrirtækisins.
Verslanirnar eru rúmlega 60 talsins víða um land og eru undir merkjum Nettó, Krambúðarinnar, Kjörbúðarinnar og Iceland. Verðið verður nú sambærilegt og jafnvel lægra en í upphafi árs og kemur til með að haldast að minnsta kosti óbreytt til áramóta.
Hugsunin með lækkunum þessum er að sporna gegn áhrifum verðbólgu á dagleg innkaup fólks, segir í tilkynningu.