sudurnes.net
Samkaup gefur starfsfólki 150 milljóna bónus - Local Sudurnes
Stjórn Samkaupa hefur ákveðið að verja um 150 milljónum króna í aðgerðarpakka til starfsfólks fyrirtækisins. Pakkinn er sagður ná til allra 1400 starfsmanna samsteypunnar, sem starfa í 61 verslun um land allt; meðal annars Nettó, Kjörbúðinni, Krambúðinni, Iceland og Samkaup Frá þessu var greint í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Pakkinn felur meðal annars í sér aukinn afslátt af matvöru í verslunum fyrirtækisins, mánaðar sjónvarpsáskrift, páskaegg og „andlega upplyftingu“ hjá Heilsuvernd. Þá fá starfsmenn auka orlofsdag á launum. Þar að auki munu starfsmennirnir fá annars konar uppbót, eftir að faraldrinum lýkur. Sá hluti pakkans sé með áherslu á sumarorlof starfsmanna og er unninn með samstarfsaðilum Samkaupa svo sem hótelum, veitingastöðum, bílaleigum, kvikmyndahúsum og svo eitthvað sé nefnt. Meira frá SuðurnesjumReykjanesbær og Vogar gefa grænt ljós á leyfi til leitar að málmum á ReykjanesiJón Ásgeir og félagar kaupa hlut í SamkaupSamkaup metið á átta milljarðaSamkaup lækka verð á yfir 400 vörunúmerumStöðvuðu kannabisræktun og landabruggunVeðurhamurinn og tjónið – Sjáðu myndbandið!Mest lesið á árinu: IGS fyllti heilu fjölbýlishúsin af erlendu vinnuafliHandverkssýning eldri borgara – Fjöldi skemmtiatriða út vikunaSuðurnesjaþingmenn á meðal þeirra sem fá hæstu kostnaðargreiðslurnarRéttað í Þórkötlustaðarétt á laugardaginn