sudurnes.net
Samherji í ólgusjó með öfluga starfsemi á Suðurnesjum - Local Sudurnes
Sjávarútvegsfyrirtækið Samherji hefur undanfarna daga verið mikið til umfjöllunar í fjölmiðlum eftir að greint var frá því í fréttaskýringaþættinum Kveik að fyrirtækið hafi greitt háttsettum stjórnmála- og embættismönnum í Namibíu hundruð milljóna króna í þeim tilgangi að komast yfir eftirsóttan kvóta. Samherji er með öfluga starfsemi á Suðurnesjum, en fyrirtækið rekur bæði seiðastöðvar og áframeldi fyrir bleikju á Suðurnesjasvæðinu auk þess sem fyrirtækið tók í notkun glæsilega slátur- og pökkunarstöð í Sandgerði á síðasta ári. Á Stað við Grindavík starfrækir Samherji bæði seiðastöð og áframeldi fyrir bleikju á samtals um 30.000 fermetra svæði. Seiðastöðin á Stað sér þannig áframeldinu á Stað fyrir seiðum en hluti seiðanna er fluttur til áframeldis í stöð fyrirtækisins á Vatnsleysuströnd. Daglegur rekstur matfiskastöðvarinnar er að miklu leyti tölvustýrður og jafnframt hægt að fylgjast með því sem fram fer í stöðinni í gegnum myndavéla-eftirlitskerfi. Áframeldisstöð fyrir bleikju staðsett á Vatnsleysuströnd á Reykjanesi. Stöðin, sem líkt og í Grindavík er á um 30.000 fermetra svæði, tekur við seiðum til áframeldis frá öllum seiðastöðvum fyrirtækisins. Allt eldið fer fram utandyra í steyptum kerjum. Líkt og í Grindavík er daglegur rekstur stöðvarinnar að miklu leyti tölvustýrður og fylgst er með því sem fram fer í stöðinni í gegnum myndavéla-eftirlitskerfi. Þá tók fyrirtækið í notkun slátur- [...]