Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja rædd á haustfundi
Heklan, atvinnuþróunarfélag Suðurnesja býður til árlegs haustfundar fmmtudaginn 25. október í Berginu, Hljómahöll kl. 12 – 13. Húsið opnar kl 11.45 með hádegissnarli. Að þessu sinni verður samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja umræðuefni haustfundar.
Dagskrá
- Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA
– Samfélagsleg ábyrgð og IKEA - Skúli Skúlason, formaður Kaupfélags Suðurnesja
– Í eigu samfélags - Ragna Sara Jónsdóttir, stofnandi FÓLK Reykjavík
– Samfélagsleg áhrif nýsköpunarfyrirtækja
Sólmundur Hólm mun halda stemmningunni léttri.
Fundarstjóri er Fida Abu Libdeh framkvæmdastjóri GeoSilica.