Nýjast á Local Suðurnes

Sameiginlegur vefur fyrir öll söfnin í Reykjanesbæ

Byggðasafn Reykjanesbæjar hefur opnað nýjan vef á slóðinni sofn.reykjanesbaer.is/byggdasafn. Einnig hefur verið sett upp sameiginleg vefsíða fyrir öll söfnin í Reykjanesbæ þar sem finna má yfirlit yfir allar sýningar og viðburði sem eru í boði hverju sinni. Slóðin er sofn.reykjanesbaer.is.

Vefurinn er unninn í vefumsjónarkerfinu Moya og Stefna hugbúnaðarhús hefur haft veg og vanda að hönnun vefjarins.