Salat frá Gló á boðstólnum í vélum Icelandair
Icelandair hóf að bjóða upp á nýjan matseðil á almennu farrými hinn 16. júní síðastliðinn. Meðal nýjunga í flugi til Norður-Ameríku er salat frá veitingastaðnum Gló, sem bæði er til í vegan útgáfu og með kjúklingi.
Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir í samtali við mbl.is salatið hafa mælst afar vel fyrir meðal farþega. Hann segir megnið af matnum um borð vera búinn til um borð í flugeldhúsinu á Keflavíkurflugvelli, en það sé hins vegar einnig gert í samstarfi við aðra. „Við höfum verið með litla hamborgara frá Hamborgarafabrikkunni og erum nú með skyr frá MS,“ bendir hann á.
„Þetta er skemmtilegt samstarf við öfluga íslenska aðila. Það er gaman að bjóða upp á ferskar nýjungar og maturinn frá Gló er mjög vinsæll,“ segir hann.