sudurnes.net
Rýmingaráætlun fyrir Reykjanesbæ tilbúin - Local Sudurnes
Fyrsta útgáfa af innri rýmingaráætlunum fyrir stofnanir Reykjanesbæjar eru nú tilbúnar ásamt rýmingaráætlun fyrir sveitarfélagið. Ólíklegt er talið að grípa þurfi til bráðarýmingar vegna náttúruhamfara, segir í tilkynningu á vef sveitarfélagsins. Í tilkynningu segir einnig að stjórnendur og aðrir sem gegna ábyrgðarhlutverkum hafi fengið kynningu á áætluninni og þekkji sitt hlutverk. Áður höfðu stofnanir gert rýmingaráætlanir vegna eldsvoða og annarrar vár sem kallar á skjóta rýmingu húsnæðis. Eldgos á því svæði sem nú er talið líklegast er fjarri Reykjanesbæ og kallar ekki á skjót viðbrögð íbúa. Það sem mikilvægast er fyrir fólk á svæðinu er að halda ró sinni og fylgjast með fréttum, sérstaklega hvað varðar loftmengun og öskufall. Meira frá SuðurnesjumSameining VS og VR gengin í gegnRýmingaráætlun fyrir Reykjanesbæ tilbúinGaskútum stolið um hábjartan dag- Fólk hvatt til að tilkynna grunsamlegar mannaferðir til lögregluGuðbrandur segir af sér sem formaðurArnar Már er Grindvíkingur ársins – Mokaði snjó frá öllum húsum bæjarinsTelur að eitrað hafi verið fyrir ketti í Innri-NjarðvíkGönguleiðir að gosstöðvunum opnarSorp ekki flokkað tímabundiðBæjarstjóri telur að nú sé tæki­færi til að lækka álög­ur á íbúaMisjöfn viðbrögð við úrræði Heimavalla – Íbúar ósáttir en formaður VR segir úrræðið fagnaðarefni